Jesaja. Chapter 8

1 Drottinn sagði við mig: 'Tak þér stórt spjald og rita þú á það með algengu letri: Hraðfengi Skyndirán.
2 Og tak mér skilríka votta, prestinn Úría og Sakaría Jeberekíason.'
3 Og ég nálgaðist spákonuna, og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: 'Lát þú hann heita Hraðfengi Skyndirán.
4 Því að áður en sveinninn lærir að kalla ,faðir minn` og ,móðir mín,` skal auður Damaskus og herfang Samaríu burt flutt verða fram fyrir Assýríukonung.'
5 Og Drottinn talaði enn við mig og sagði:
6 Af því að þessi lýður fyrirlítur hin straumhægu Sílóa-vötn, en fagnar Resín og Remaljasyni,
7 sjá, fyrir því mun Drottinn láta yfir þá koma hin stríðu og miklu vötn fljótsins
8 Og það skal brjótast inn í Júda, flæða þar yfir og geysast áfram, þar til manni tekur undir höku, og breiða vængi sína yfir allt þitt land, eins og það er vítt til, Immanúel!
9 Vitið það, lýðir, og hlustið á, allar fjarlægar landsálfur! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast!
10 Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því að Guð er með oss!
11 Svo mælti Drottinn við mig, þá er hönd hans hreif mig og hann varaði mig við því að ganga sama veg og þetta fólk gengur:
12 Þér skuluð ekki kalla allt það ,samsæri`, sem þetta fólk kallar ,samsæri`, og ekki óttast það, sem það óttast, og eigi skelfast.
13 Drottinn allsherjar, hann skuluð þér telja heilagan, hann sé yður ótti, hann sé yður skelfing.
14 Og hann skal verða helgidómur og ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir báðar ættþjóðir Ísraels og snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.
15 Og margir af þeim munu hrasa, falla og meiðast, festast í snörunni og verða veiddir.
16 Ég bind saman vitnisburðinn og innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum.
17 Ég treysti Drottni, þótt hann byrgi nú auglit sitt fyrir Jakobs niðjum, og ég bíð hans.
18 Sjá, ég og synirnir, sem Drottinn hefir gefið mér, vér erum til tákns og jarteikna í Ísrael frá Drottni allsherjar, sem býr á Síonfjalli.
19 Ef þeir segja við yður: 'Leitið til andasæringarmanna og spásagnarmanna, sem hvískra og umla!
20 þá svarið þeim: 'Til kenningarinnar og vitnisburðarins!' Ef menn tala ekki samkvæmt þessu orði, hafa þeir engan morgunroða
21 og munu ráfa hrjáðir og hungraðir. Og er þá hungrar munu þeir fyllast bræði og formæla konungi sínum og Guði sínum. Hvort sem horft er til himins
22 eða litið til jarðar, sjá, þar er neyð og myrkur. Í angistarsorta og niðdimmu eru þeir útreknir.