Jobsbók. Chapter 23

1 Þá svaraði Job og sagði:
2 Enn sem fyrr munu kveinstafir mínir verða taldir uppreisn, hönd Guðs hvílir þungt á andvörpum mínum.
3 Ég vildi að ég vissi, hvernig ég ætti að finna hann, hvernig ég gæti komist fram fyrir dómstól hans!
4 Þá mundi ég útskýra málið fyrir honum og fylla munn minn sönnunum.
5 Ég mundi fá að vita, hverju hann svaraði mér, og heyra hvað hann segði við mig.
6 Mundi hann deila við mig í mikilleik máttar síns? Nei, hann mundi veita mér óskipta athygli.
7 Þá mundi hreinskilinn maður þreyta málsókn við hann, og ég mundi að eilífu losna við dómara minn.
8 En fari ég í austur, þá er hann þar ekki, og í vestur, þar verð ég hans eigi var.
9 Þótt hann hafist að í norðri, þá sé ég hann ekki, og sveigi hann á leið til suðurs, fæ ég ekki litið hann.
10 En hann veit, hvernig breytni mín hefir verið, ef hann prófaði mig, mundi ég reynast sem gull.
11 Fótur minn hefir þrætt spor hans, ég hefi haldið veg hans og eigi hneigt af leið.
12 Frá skipun vara hans hefi ég ekki vikið, hefi varðveitt í brjósti mér orð munns hans.
13 En hann er samur við sig
14 Já, hann framkvæmir það, er hann hefir ætlað mér, og mörgu slíku býr hann yfir.
15 Þess vegna skelfist ég auglit hans. Hugleiði ég það, hræðist ég hann.
16 Já, Guð hefir gjört mig hugdeigan, og hinn Almáttki skotið mér skelk í bringu.
17 Því að það er ekki vegna ógæfunnar, að ég stend örþrota, né vegna sjálfs mín, þótt niðdimman hylji mig.