Jóhannesarguðspjall. Chapter 10

1 'Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem kemur ekki um dyrnar inn í sauðabyrgið, heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi,
2 en sá sem kemur inn um dyrnar, er hirðir sauðanna.
3 Dyravörðurinn lýkur upp fyrir honum, og sauðirnir heyra raust hans, og hann kallar á sína sauði með nafni og leiðir þá út.
4 Þegar hann hefur látið út alla sauði sína, fer hann á undan þeim, og þeir fylgja honum, af því að þeir þekkja raust hans.
5 En ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur flýja frá honum, því þeir þekkja ekki raust ókunnugra.'
6 Þessa líkingu sagði Jesús þeim. En þeir skildu ekki hvað það þýddi, sem hann var að tala við þá.
7 Því sagði Jesús aftur: 'Sannlega, sannlega segi ég yður: Ég er dyr sauðanna.
8 Allir þeir, sem á undan mér komu, eru þjófar og ræningjar, enda hlýddu sauðirnir þeim ekki.
9 Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig, mun frelsast, og hann mun ganga inn og út og finna haga.
10 Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess, að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð.
11 Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
12 Leiguliðinn, sem hvorki er hirðir né sjálfur á sauðina, sér úlfinn koma og yfirgefur sauðina og flýr, og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim.
13 Enda er hann leiguliði og lætur sér ekki annt um sauðina.
14 Ég er góði hirðirinn og þekki mína, og mínir þekkja mig,
15 eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina.
16 Ég á líka aðra sauði, sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir.
17 Fyrir því elskar faðirinn mig, að ég legg líf mitt í sölurnar, svo að ég fái það aftur.
18 Enginn tekur það frá mér, heldur legg ég það sjálfur í sölurnar. Ég hef vald til að leggja það í sölurnar og vald til að taka það aftur. Þessa skipan fékk ég frá föður mínum.'
19 Aftur varð ágreiningur með Gyðingum út af þessum orðum.
20 Margir þeirra sögðu: 'Hann hefur illan anda og er genginn af vitinu. Hvað eruð þér að hlusta á hann?'
21 Aðrir sögðu: 'Þessi orð mælir enginn sá, sem hefur illan anda. Mundi illur andi geta opnað augu blindra?'
22 Nú var vígsluhátíðin í Jerúsalem og kominn vetur.
23 Jesús gekk um í súlnagöngum Salómons í helgidóminum.
24 Þá söfnuðust Gyðingar um hann og sögðu við hann: 'Hve lengi lætur þú oss í óvissu? Ef þú ert Kristur, þá seg oss það berum orðum.'
25 Jesús svaraði þeim: 'Ég hef sagt yður það, en þér trúið ekki. Verkin, sem ég gjöri í nafni föður míns, þau vitna um mig,
26 en þér trúið ekki, því að þér eruð ekki úr hópi sauða minna.
27 Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér.
28 Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni.
29 Faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er meiri en allir, og enginn getur slitið þá úr hendi föðurins.
30 Ég og faðirinn erum eitt.'
31 Gyðingar tóku aftur upp steina til að grýta hann.
32 Jesús mælti við þá: 'Ég hef sýnt yður mörg góð verk frá föður mínum. Fyrir hvert þeirra verka viljið þér grýta mig?'
33 Gyðingar svöruðu honum: 'Vér grýtum þig ekki fyrir góð verk, heldur fyrir guðlast, að þú, sem ert maður, gjörir sjálfan þig að Guði.'
34 Jesús svaraði þeim: 'Er ekki skrifað í lögmáli yðar: ,Ég hef sagt: Þér eruð guðir`?
35 Ef það nefnir þá guði, sem Guðs orð kom til,
36 segið þér þá við mig, sem faðirinn helgaði og sendi í heiminn, að ég guðlasti, af því ég sagði: ,Ég er sonur Guðs`?
37 Ef ég vinn ekki verk föður míns, trúið mér þá ekki,
38 en ef ég vinn þau, þá trúið verkunum, þótt þér trúið mér ekki, svo að þér skiljið og vitið, að faðirinn er í mér og ég í föðurnum.'
39 Nú reyndu þeir aftur að grípa hann, en hann gekk úr greipum þeirra.
40 Hann fór aftur burt yfir um Jórdan, þangað sem Jóhannes hafði fyrrum verið að skíra, og var þar um kyrrt.
41 Margir komu til hans. Þeir sögðu: 'Víst gjörði Jóhannes ekkert tákn, en allt er það satt, sem hann sagði um þennan mann.'
42 Og þarna tóku margir trú á hann.