Sálmarnir. Chapter 46

1 Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.
2 Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
3 Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
4 Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]
5 Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.
6 Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
7 Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.
8 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]
9 Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.
10 Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.
11 'Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.'
12 Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]