Sakaría. Chapter 5

1 Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi.
2 Þá sagði hann við mig: 'Hvað sér þú?' Ég svaraði: 'Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða.'
3 Þá sagði hann við mig: 'Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan.'
4 Ég hefi látið hana út ganga
5 Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: 'Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!'
6 Ég sagði: 'Hvað er þetta?' Þá sagði hann: 'Þetta er efan, sem kemur í ljós.' Þá sagði hann: 'Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu.'
7 Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni.
8 Þá sagði hann: 'Þetta er Vonskan!'
9 Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim
10 Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: 'Hvert fara þær með efuna?'
11 Hann svaraði mér: 'Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.'