Sakaría. Chapter 13

1 Á þeim degi mun Davíðs húsi og Jerúsalembúum standa opin lind til að þvo af sér syndir og saurugleik.
2 Á þeim degi
3 En ef nokkur kemur enn fram sem spámaður, þá munu faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, segja við hann: 'Þú skalt eigi lífi halda, því að þú hefir talað lygi í nafni Drottins.' Og faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, munu leggja hann í gegn, þá er hann kemur fram sem spámaður.
4 Á þeim degi munu allir spámenn skammast sín fyrir sýnir sínar, þá er þeir eru að spá, og þeir skulu eigi klæðast loðfeldum til þess að blekkja aðra,
5 heldur mun hver þeirra segja: 'Ég er enginn spámaður, ég er akurkarl, því á akuryrkju hefi ég lagt stund frá barnæsku.'
6 Og segi einhver við hann: 'Hvaða ör eru þetta á brjósti þínu?' þá mun hann svara: 'Það er eftir högg, sem ég fékk í húsi ástvina minna.'
7 Hef þig á loft, sverð, gegn hirði mínum og gegn manninum, sem mér er svo nákominn!
8 Og svo skal fara í gjörvöllu landinu
9 En þennan þriðjung læt ég í eld og bræði þá, eins og silfur er brætt, og hreinsa þá eins og gull er hreinsað. Hann mun ákalla nafn mitt, og ég mun bænheyra hann og ég mun segja: 'Þetta er minn lýður!' og hann mun segja: 'Drottinn, Guð minn!'