Sakaría. Chapter 3

1 Því næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest, þar sem hann stóð frammi fyrir engli Drottins og Satan honum til hægri handar til þess að ákæra hann.
2 En Drottinn mælti til Satans: 'Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?'
3 Jósúa var í óhreinum klæðum, þar er hann stóð frammi fyrir englinum.
4 Þá tók engillinn til máls og mælti til þeirra, er stóðu frammi fyrir honum: 'Færið hann úr hinum óhreinu klæðum!' Síðan sagði hann við hann: 'Sjá, ég hefi burt numið misgjörð þína frá þér og læt nú færa þig í skrúðklæði.'
5 Enn fremur sagði hann: 'Látið hreinan ennidúk um höfuð hans!' Þá létu þeir hreinan ennidúk um höfuð hans og færðu hann í klæðin, en engill Drottins stóð hjá.
6 Og engill Drottins vitnaði fyrir Jósúa og sagði:
7 'Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og varðveitir boðorð mín, þá skalt þú og stjórna húsi mínu og gæta forgarða minna, og ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna.'
8 Heyr, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja frammi fyrir þér, eru fyrirboðar þess, að ég læt þjón minn Kvist koma.
9 Því sjá, steinninn, sem ég hefi lagt frammi fyrir Jósúa
10 Á þeim degi