Jeremía. Chapter 23

1 Vei hirðunum, sem eyða og tvístra gæsluhjörð minni! segir Drottinn.
2 Fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð, svo um hirðana, sem gæta þjóðar minnar: Þér hafið tvístrað sauðum mínum og sundrað þeim og ekki litið eftir þeim. Sjá, ég skal vitja vonskuverka yðar á yður
3 En ég vil sjálfur safna leifum hjarðar minnar saman úr öllum löndum, þangað sem ég hefi rekið þá, og leiða þá aftur í haglendi þeirra, og þeir skulu frjóvgast og þeim fjölga.
4 Og ég vil setja hirða yfir þá, og þeir skulu gæta þeirra, og þeir skulu eigi framar hræðast né skelfast og einskis þeirra skal saknað verða
5 Sjá, þeir dagar munu koma
6 Á hans dögum mun Júda hólpinn verða og Ísrael búa óhultur, og þetta mun verða nafn hans, það er menn nefna hann með: 'Drottinn er vort réttlæti!'
7 Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma
8 heldur: 'Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi og flutti heim niðja Ísraels húss úr landinu norður frá og úr öllum þeim löndum, þangað sem ég hafði rekið þá, svo að þeir mættu búa í landi sínu!'
9 Um spámennina: Hjartað í brjósti mér er sundurmarið, öll bein mín skjálfa. Ég er eins og drukkinn maður, eins og maður sem vínið hefir bugað, vegna Drottins og vegna hans heilögu orða.
10 Landið er fullt af hórkörlum, já, vegna bölvunarinnar syrgir landið, og beitilöndin í öræfunum eru skrælnuð. Þeir hlaupa á eftir vonsku og styrkur þeirra er ósannsögli.
11 Bæði spámenn og prestar eru guðlausir, jafnvel í húsi mínu hefi ég rekið mig á vonsku þeirra
12 Fyrir því mun vegur þeirra verða þeim eins og sleipir staðir í myrkri. Þeim skal verða hrundið, svo að þeir detti á honum, því að ég leiði óhamingju yfir þá árið sem þeim verður refsað
13 Hjá spámönnum Samaríu sá ég hneykslanlegt athæfi: Þeir spáðu í nafni Baals og leiddu lýð minn Ísrael afvega.
14 En hjá spámönnum Jerúsalem sá ég hryllilegt athæfi: Þeir drýgja hór og fara með lygar og veita illgjörðarmönnum liðveislu, svo að enginn þeirra snýr sér frá illsku sinni. Þeir eru allir orðnir mér eins og Sódóma og íbúar hennar eins og Gómorra.
15 Fyrir því segir Drottinn allsherjar svo um spámennina: Sjá, ég vil gefa þeim malurt að eta og eiturvatn að drekka, því að frá spámönnum Jerúsalem hefir guðleysi breiðst út um allt landið.
16 Svo segir Drottinn allsherjar: Hlýðið ekki á orð spámannanna, sem spá yður; þeir draga yður á tálar. Þeir boða vitranir, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni.
17 Sífelldlega segja þeir við þá, er hafa hafnað orði Drottins: 'Yður mun heill hlotnast!' Og við alla sem fara eftir þverúð hjarta síns, segja þeir: 'Engin ógæfa mun yfir yður koma!'
18 Já, hver stendur í ráði Drottins? Hver sér og heyrir orð hans? Hver gefur gaum að orðum mínum og kunngjörir þau?
19 Sjá, stormur Drottins brýst fram
20 Reiði Drottins léttir ekki fyrr en hann hefir framkvæmt og leitt til lykta fyrirætlanir hjarta síns. Síðar meir munuð þér skilja það greinilega.
21 Ég hefi ekki sent spámennina, og þó hlupu þeir. Ég hefi eigi talað til þeirra, og þó spáðu þeir.
22 Hefðu þeir staðið í mínu ráði, þá mundu þeir kunngjöra þjóð minni mín orð og snúa þeim frá þeirra vonda vegi og frá þeirra vondu verkum.
23 Er ég þá aðeins Guð í nánd
24 Getur nokkur falið sig í fylgsnum, svo að ég sjái hann ekki?
25 Ég heyri hvað spámennirnir segja, þeir sem boða lygar í mínu nafni. Þeir segja: 'Mig dreymdi, mig dreymdi!'
26 Hversu lengi á þetta svo að ganga? Ætla spámennirnir, þeir er boða lygar og flytja tál, er þeir sjálfir hafa upp spunnið
27 hvort hyggjast þeir að koma þjóð minni til að gleyma nafni mínu, með draumum sínum, er þeir segja hver öðrum, eins og feður þeirra gleymdu nafni mínu vegna Baals?
28 Sá spámaður, sem dreymir draum, segi drauminn, og sá, sem hefir mitt orð, flytji hann mitt orð í sannleika. Hvað er sameiginlegt hálmstrái og korni?
29 Er ekki orð mitt eins og eldur
30 Sjá, þess vegna skal ég finna spámennina
31 Ég skal finna spámennina
32 Ég skal finna spámennina, sem kunngjöra lygadrauma
33 Þegar þessi lýður spyr þig, eða einhver spámaðurinn eða einhver presturinn, og segir: 'Hver er byrði Drottins?' þá skalt þú segja við þá: Þér eruð byrðin, og ég mun varpa yður af mér
34 En sá spámaður og sá prestur og sá lýður, sem talar um 'byrði Drottins'
35 Svo skuluð þér segja hver við annan og einn við annan: 'Hverju hefir Drottinn svarað?' eða 'Hvað hefir Drottinn sagt?'
36 En 'byrði Drottins' skuluð þér ekki framar nefna, því að hverjum manni munu þau orð hans verða 'byrði', þar sem þér hafið rangfært orð hins lifanda Guðs, Drottins allsherjar, vors Guðs.
37 Svo skulu menn segja við spámanninn: 'Hverju hefir Drottinn svarað þér?' eða 'Hvað hefir Drottinn sagt?'
38 En ef þér talið um 'byrði' Drottins
39 sjá, fyrir því vil ég hefja yður upp og varpa yður og borginni, sem ég gaf yður og feðrum yðar, burt frá mínu augliti.
40 Og ég legg á yður eilífa smán og eilífa skömm, sem aldrei mun gleymast.