Malakí

1 Spádómur. Orð Drottins til Ísraels fyrir munn Malakí.
2 'Ég elska yður,' segir Drottinn. Og ef þér spyrjið: 'Með hverju hefir þú sýnt á oss kærleika þinn?' þá svarar Drottinn: 'Var ekki Esaú bróðir Jakobs? En ég elskaði Jakob
3 og hafði óbeit á Esaú, svo að ég gjörði fjallbyggðir hans að auðn og fékk eyðimerkursjakölunum arfleifð hans til eignar.'
4 Ef Edómítar segja: 'Vér höfum að vísu orðið fyrir eyðingu, en vér munum byggja upp aftur rofin!' þá segir Drottinn allsherjar svo: 'Byggi þeir, en ég mun rífa niður, svo að menn munu kalla þá Glæpaland og Lýðinn sem Drottinn er eilíflega reiður.'
5 Þér munuð sjá það með eigin augum og þér munuð segja: 'Mikill er Drottinn langt út fyrir landamæri Ísraels.'
6 Sonurinn skal heiðra föður sinn og þrællinn húsbónda sinn. En sé ég nú faðir, hvar er þá heiðurinn sem mér ber, og sé ég húsbóndi, hvar er þá lotningin sem mér ber?
7 Þér berið fram óhreina fæðu á altari mitt. Og enn getið þér spurt: 'Með hverju ósæmum vér þig?' þar sem þér þó segið: 'Borð Drottins er lítils metandi!'
8 Og þegar þér færið fram blinda skepnu til fórnar, þá kallið þér það ekki saka, og þegar þér færið fram halta eða sjúka skepnu, þá kallið þér það ekki saka. Fær landstjóra þínum það, vit hvort honum geðjast þá vel að þér eða hvort hann tekur þér vel!
9 Og nú, blíðkið Guð, til þess að hann sýni oss líknsemi. Yður er um þetta að kenna. Getur hann þá tekið nokkrum yðar vel?
10 Sæmra væri, að einhver yðar lokaði musterisdyrunum, svo að þér tendruðuð ekki eld til ónýtis á altari mínu. Ég hefi enga velþóknun á yður
11 Frá upprás sólar allt til niðurgöngu hennar er nafn mitt mikið meðal þjóðanna, og alls staðar er nafni mínu fórnað reykelsi og hreinni matfórn, því að nafn mitt er mikið meðal þjóðanna
12 En þér vanhelgið það, með því að þér segið: 'Borð Drottins er óhreint, og það sem af því fellur oss til fæðslu, er einskis vert.'
13 Og þér segið: 'Sjá, hvílík fyrirhöfn!' og fyrirlítið það,
14 Bölvaðir veri þeir svikarar, er eiga hvatan fénað í hjörð sinni og gjöra heit, en fórna síðan Drottni gölluðu berfé! Því að ég er mikill konungur,